Sport

Browns rekur þjálfarann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hue Jackson á hliðarlínunni með Browns.
Hue Jackson á hliðarlínunni með Browns. vísir/getty
Það gengur ekki vel hjá íþróttaliðunum í Cleveland og nú er búið að reka báða aðalþjálfarana í borginni á tveimur dögum.

Í gær var Ty Lue, þjálfari NBA-liðsins Cleveland Cavaliers, rekinn og nú er búið að reka Hue Jackson, þjálfara NFL-liðsins Cleveland Browns.

Cavaliers hefur ekki enn unnið leik í NBA-deildinni og en Browns hefur þó unnið tvo leiki í vetur sem er tveimur meira en liðið gerði allan síðasta vetur.

Þrátt fyrir að hafa tapað öllum leikjum sínum síðasta vetur hélt Jackson starfi sínu. Liðið fór svo ágætlega af stað í vetur en í síðustu leikjum hefur ekki staðið steinn yfir steini. Jackson þarf nú að blæða fyrir það.

Þó fyrr hefði verið segja margir enda er Jackson með næstlélegasta árangur allra þjálfara í sögu NFL-deildarinnar.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×