Erlent

Rapparinn Young Greatness skotinn til bana

Atli Ísleifsson skrifar
Young Greatness varð 34 ára gamall.
Young Greatness varð 34 ára gamall. Getty/prince williams
Bandaríski rapparinn Young Greatness var skotinn til bana fyrir utan skyndibitastað í heimaborg sinni New Orleans í dag. Hann varð 34 ára gamall.

Billboard greinir frá þessu. Young Greatness hét í raun Teodore Jones og er þekktastur fyrir lag sitt Moolah sem náði 85. sæti á bandaríska Billboard-listanum árið 2016.

Útgefandi hans var fyrirtækið Cash Money, sem hefur bæði verið með Drake og Nicki Minaj á sínum snærum.

WWL-TV segir að skotbardagi hafi brotist út fyrir utan veitingastað Waffle House og var rapparinn látinn þegar sjúkralið kom á vettvang.

Enginn hefur enn verið handtekinn í tengslum við málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×