Lífið

Glódís og Steinþór selja glæsilega íbúð í Vesturbænum og færa sig í næsta stigagang

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fjölskyldan fer ekki langt.
Fjölskyldan fer ekki langt.
Margverðlaunaða fimleikakonan Glódís Guðgeirsdóttir og Steinþór Helgi Arnsteinsson hafa sett íbúð sína við Grandaveg í Vesturbænum á söluskrá.  

Um er að ræða sérstaklega fallega 93 fermetra tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í þessu vandaða og glæsilega fjölbýlishúsi.

„Erum einfaldlega að stækka við ykkur, svo að litli drengurinn okkar fái sérherherbergi,“ segir Steinþór.

„Okkur finnst samt gríðarlega erfitt að selja, því við algjörlega elskum þessa íbúð og staðsetninguna. Enda erum við ekki að fara neitt langt, bara í næsta stigagang, þannig að við verðum nágrannar nýju eigendanna. Ef eitthvað kemur upp á geta þeir bara kallað á mig af svölunum,“ segir Steinþór en þau eignuðust saman dreng í lok síðasta árs.

Steinþór er spurningahöfundur og dómari í Gettu betur og athafnamaður, og Glódís hefur meðal annars orðið Íslands-, Norðurlanda- og Evrópumeistari í hópfimleikum.

Húsið var byggt árið 2016 og er eitt svefnherbergi í íbúðinni. Fasteignamat eignarinnar er rúmlega 45 milljónir en ásett verð er 54,9 milljónir.

Parið keypti íbúðina á sínum tíma tilbúna til innréttinga og hafa innréttað af mikilli smekkvísi, eins og sjá má á myndunum hér að neðan.

Glæsilegur garður við húsið.
Virkilega skemmtilegt eldhús. Glódís og Steinþór innréttuðu allt sjálf.
Mjög björt og falleg stofa.
Rúmgóð og kósý sjónvarpshol.
Baðherbergið er skemmtilega hannað og snyrtilegt.
Fínasta hjónaherbergi.
Svalirnar eru lokaðar og ætti það að henta vel hér á landi. Hægt er að opna þær upp á gátt.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×