Viðskipti innlent

Saksóknari sagður klína sök á vinnandi fólk

Kjartan Kjartansson skrifar
Guðný Arna Sveinsdóttir fer yfir málin með verjanda sínum, Sigurði G. Guðjónssyni, í Héraðsdómi í gær.
Guðný Arna Sveinsdóttir fer yfir málin með verjanda sínum, Sigurði G. Guðjónssyni, í Héraðsdómi í gær. Vísir/Vilhelm
Verjandi fyrrverandi fjármálastjóra Kaupþings sakaði saksóknara um að reyna að „klína sök“ á fólk fyrir að vinna vinnuna sína við aðalmeðferð málsins gegn honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Fjármálastjóranum er gefið að sök að hafa átt hlutdeild í umboðssvikum bankastjóra Kaupþings.

Í ákæru á hendur Guðnýju Örnu Sveinsdóttir, þáverandi fjármálastjóra Kaupþings, er hún sökuð um að hafa átt hlutdeild í broti Hreiðars Más Sigurðssonar, þáverandi bankastjóra, þegar honum var veitt lán fyrir hlutabréfakaupum á grundvelli kaupréttar sem hann átti í ágúst árið 2008. Hreiðar Már hafi framið umboðssvik með því að láta bankann lána eignarhaldsfélags sínu þrátt fyrir að samþykki stjórnar og fullnægjandi veð skorti.

Það á Guðný Arna að hafa gert með fyrirmælum til undirmanna um að ganga frá láninu eftir að Hreiðar Már tilkynnti að hann ætlaði að nýta sér kauprétt á bréfum í bankanum. Verjandi Hreiðars Más hefur byggt á því að lánið hafi verið hluti af starfskjörum hans samkvæmt kaupréttarstefnu bankans og að stjórn bankans hafi ekki þurft að samþykkja það sérstaklega.

Sigurður G. Guðjónsson, skipaður verjandi Guðnýjar, sagði að eina sem hún hefði gert sem fjármálastjóri Kaupþingssamstæðunnar hafi verið að passa upp á að lánið væri veitt í samræmi við reglur bankans, að lánakjör væru rétt, að gengið væri frá skjölum og lánið greitt út.

„Það þarf alveg sérstakt innræti og hugarfar að ætla að klína sök á fólk sem er að reyna að vinna vinnuna sína,“ sagði verjandinn.

Segir saksóknara lesa tölvupóstana „öfugt“

Engin gögn í málinu bendi til þess að Guðný Arna hafi tekið ákvarðanir eða skipað fyrir um lánið. Hún hafi ekki getað tekið ákvörðun um það. Þá hafi ekki verið sýnt fram á að hún hafi hvorki haft neinn ásetning um að auðga einn né neinn með meintu broti né að brjóta reglur bankans.

Vísaði Sigurður til tölvupóstsamskipta Guðnýjar Örnu við aðra starfsmenn bankans sem saksóknari byggir á þar sem hún virtist hafa spurningar um lánið til Hreiðars Más. Taldi verjandinn langsótt að ætla að dæma starfsmenn fyrir að senda tölvupósta til að tryggja að væri rétt gert.

„Að lesa tölvupóstana jafn öfugt og saksóknari gerði í morgun er alveg með ólíkindum,“ sagði Sigurður.

Endurtók lögmaðurinn gagnrýni sem hann hefur haft uppi á embætti sérstaks saksóknara sem starfaði á árunum eftir hrun þar til það varð að embætti héraðssaksóknara. Sérstakur saksóknari hafi gert bankafólk tortryggilegt til að sefa reiði í samfélaginu eftir hrunið.

Sakaði hann saksóknara um að hafa gert Guðnýju Örnu og Hreiðar Má að sakamönnum vegna þess að annað þeirra átti réttindi á hendur vinnuveitenda sem vinnuveitandinn efndi og hinn starfsmaðurinn sá um að væri gert samkvæmt bókinni.

Aðalmeðferð í málinu er lokið og má reikna með dómi innan fjögurra vikna.


Tengdar fréttir

Saksóknari krefst heimildar til að refsa Hreiðari Má frekar

Ekki er mark takandi á framburði fyrrverandi stjórnarmanna og yfirmanna hjá Kaupþingi um að stjórn bankans hafi ekki þurft að samþykkja lán til Hreiðars Más Sigurðssonar bankastjóra sérstaklega skömmu fyrir fall bankans árið 2008.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×