Körfubolti

Martin öflugur í stórsigri Alba Berlin

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Martin er að gera það gott í Þýskalandi
Martin er að gera það gott í Þýskalandi vísir/ernir
Alba Berlin er enn ósigrað í þýsku Bundesligunni í körfubolta eftir öruggan sigur á HAKRO Merlins í kvöld.

Fyrir leikinn var búist við stórsigri Alba Berlin og sú varð raunin. Heimamenn í Berlin unnu fyrsta leikhlutann 33-15 og tóninn var settur.

Berlínarliðið vann alla fjóra leikhlutana og fór að lokum með mjög öruggan 115-76 sigur.

Martin Hermannsson spilaði rúmar 22 mínútur fyrir Berlin og skoraði 14 stig. Hann tók tvö fráköst og fiskaði þrjár villur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×