Lífið

Geir glæsilegur í galaveislu í Washington

Benedikt Bóas skrifar
Króatíski sendiherrann Pjer Simunovic, Megan Devlin frá Meridian Internat­ional Center, Inga Jóna Þórðardóttir, Lara Romano og Geir Haarde spjalla og brosa á góðri stundu. Takið eftir kjól Ingu Jónu. Glæsilegur. NordicPhotos/Getty
Króatíski sendiherrann Pjer Simunovic, Megan Devlin frá Meridian Internat­ional Center, Inga Jóna Þórðardóttir, Lara Romano og Geir Haarde spjalla og brosa á góðri stundu. Takið eftir kjól Ingu Jónu. Glæsilegur. NordicPhotos/Getty
Geir H. Haarde, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, fékk boðskort í hina eftirsóttu veislu, Meridian Ball, sem fagnaði 50 ára afmæli sínu um helgina.

Fjölmargir pólitískir hákarlar mæta til leiks, karlmenn í smóking en konurnar í sínu fínasta pússi. Eftir mat er gestum boðið á dansleik, í eftirrétt og samtal í Meridian-húsinu.

Samkvæmt heimasíðu Meridian var ódýrasti miðinn á 2.500 dollara eða tæpar 300 þúsund íslenskar krónur en sá dýrasti var á 100 þúsund dollara eða 11,6 milljónir króna. Hægt var að komast aðeins í matinn fyrir 750 dollara eða 87 þúsund krónur. Í fyrra safnaðist yfir ein milljón dollara fyrir góð málefni.

KellyAnne Conway sem vinnur ákaflega náið með Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og er sögð einn hans helsti ráðgjafi mætir á svæðið.
Partíið í ár var einstaklega glæsilegt enda 50 ára afmælisboð. Þarna koma saman sendiherrar víðsvegar að úr heiminum sem hafa aðsetur í Bandaríkjunum og skemmta sér saman. Fyrst var það svo að aðeins sendiherrum og öðrum pólitískum stórlöxum var boðið en það breyttist árið 1969. Síðan þá hafa fyrirmenni úr tónlist og kvikmyndum kíkt við.

Gestir voru prúðbrúðnir og skemmtu sér vel langt fram á rauða nótt.
Geir var í góðum félagsskap í ár en margir sem starfa náið með forseta Bandaríkjanna, Donald Trump, létu sjá sig og var dansað fram á rauðanótt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×