Lífið

Svona ber þessi Finni fram nöfn allra íslenskra þingmanna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Puhuva Pää gerir eins vel og hann getur.
Puhuva Pää gerir eins vel og hann getur.
Finnskur listamaður sem kallar sig Puhuva Pää, sem þýðir á íslensku „talandi höfuð“, heldur úti heldur óvenjulegri YouTube síðu. Hann hefur nú birt 63 myndbönd á vefnum þar sem hann reynir að bera fram nöfn íslenskra þingmanna.

Eins og margir vita sitja 63 þingmenn á Alþingi okkar Íslendinga og eru nöfnin misjafnlega erfið í framburði fyrir útlendinga.

Hér að neðan má fyrst sjá hvernig Pää tæklar framburðinn á þingmanninum Willumi Þór Þórssyni en tilraunir hans til framburðar nafna hinna þingmannanna spilast svo sjálfkrafa beint á eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×