Handbolti

Teitur Örn markahæstur í stórsigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Teitur í leik með Selfyssingum á síustu leiktíð.
Teitur í leik með Selfyssingum á síustu leiktíð. vísir/ernir
Teitur Örn Einarsson fór á kostum er Kristianstad vann ellefu marka sigur á Önnereds, 36-25, í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Teitur Örn skoraði átta mörk í leiknum en Kristianstad var átta mörkum yfir í leikhlé, 19-11. Þeir voru með mikla yfirburði allt frá byrjun leiksins.

Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað og Ólafur Guðmundsson var ekki í leikmannahóp Kristianstad.

Kristianstad er með sex sigra í fyrstu sex leikjunum og er með Skövde á toppi deildarinnar en Skövde hefur leikið tveimur leikjum meira.

Rúnar Kárason skoraði fimm mörk úr ellefu skotum og Gunnar Steinn Jónsson tvö mörk úr fjórum skotum er Ribe-Esbjerg tapaði fyrir SönderjyskE, 21-23. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði eitt mark úr þremur skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×