Sport

Ekki gaman að spila í hlandlyktinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronnie er reiður.
Ronnie er reiður. vísir/getty

Snókergoðsögnin Ronnie O'Sullivan er allt annað en sáttur við yfirmenn breska snókersambandsins fyrir að setja breska meistaramótið á einhverja skítabúllu með hlandlykt.



O'Sullivan er fimmfaldur heimsmeistari í íþróttinni og segist aldrei hafa spilað við aðrar eins aðstæður.



„Þetta er svo hörmulegur keppnisstaður að þig langar ekki einu sinni að spila. Ég hef aldrei séð aðrar eins aðstæður. Þetta er bara skítabúlla,“ sagði O'Sullivan hneykslaður.



„Ég veit ekki hvurslags staður þetta er. Ég var að gefa viðtal og fann bara hlandlykt á meðan. Svo er allt í tjóni ofan á það. Vírar út um allt og engin gæsla. Fólk valsar bara út um allt. Við eigum betra skilið en þetta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×