Handbolti

Öflugur sigur KA/Þór á Stjörnunni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jónatan þjálfar KA/Þór.
Jónatan þjálfar KA/Þór. mynd/ka
KA/Þór hafði betur gegn Stjörnunni er liðin mættust  í fimmtu umferð Olís-deildar kvenna norðan heiða í dag en lokatölur urðu 23-19 sigur heimastúlkna.

Staðan var 14-8 fyrir heimastúlkur í hálfleik sem gáfu ekkert eftir þrátt fyrir áhlaup gestana. Lokatölur fjögurra marka sigur KA/Þórs, 23-19.

Sólveig Lára Kristjánsdóttir var markahæst hjá heimastúlkum með níu mörk en næst kom Martha Hermannsdóttir með sex mörk.

Hjá gestunum var það þær Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Elísabet Gunnarsdóttir sem voru markahæstar með fimm mörk hvor.

KA/Þór er að gera frábæra hluti en liðið hefur unnið þrjá af fyrstu fimm leikjum sínum og er í öðru sæti deildarinnar.

Það er hins vegar bras á Stjörnunni. Liðið er einungis með þrjú stig eftir fyrstu fimm leikina og er í næst neðsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×