Körfubolti

Meistarar Warriors fengu einstaka hringa | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Curry kyssir hringinn sinn fallega.
Curry kyssir hringinn sinn fallega. vísir/getty
Það var hátíð í bæ hjá NBA-meisturum Golden State Warriors síðustu nótt er nýtt tímabil byrjaði í deildinni.

Áður en leikur hófst fengu leikmenn liðsins meistarahringana sína. Þeir eru ansi sérstakir.

Það er nefnilega hægt að snúa toppnum á hringnum við. Hann getur því bæði verið blár og hvítur. 74 safírar eru á bláu hliðinni til að tákna fjölda sigra á síðustu leiktíð. Á hvítu hliðinni eru svo 74 demantar.

Eins og sjá má hér að neðan þá er hringurinn geggjaður.





NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×