Tíska og hönnun

Vel varin fyrir veturinn

Gunnþórunn Jónsdóttir skrifar
Sigrún, eigandi Akkúrat, tók saman nokkrar góðar vörur fyrir veturinn.
Sigrún, eigandi Akkúrat, tók saman nokkrar góðar vörur fyrir veturinn.
Verslunin Akkúrat var valin „Best shop to pick up local design 2018“ af Grapevine þegar aðeins hafði verið opið í nokkra mánuði.

Sigrún Markúsdóttir er eigandi verslunarinnar. „Akkúrat er konsept-verslun og við leitumst við að vera með um ca. 70 prósent íslenska hönnun og 30 prósent erlenda hönnun, aðallega frá Norðurlöndunum,“ segir Sigrún.



Verslunin Akkúrat hefur vakið lukku fyrir skemmtilega uppröðun á vörum.
Hún segir verslunina einnig leggja mikið upp úr því að vera með jafnt af fatnaði fyrir karla og konur og erum með mörg unisex merki sem virka vel.

Það sé mikilvægt að til séu verslanir sem bjóði upp á alla flóruna í íslenskri hönnun, líkt og Akkúrat.

„Útlendingar eru mjög ánægðir með verslunina en við viljum einnig vera sú verslun sem Íslendingar vilja helst koma í til að skoða og kaupa íslenska hönnun og list.

Auðvitað eru fleiri verslanir hér sem eru líka með marga íslenska hönnuði en við teljum okkur vera með mjög breitt og gott úrval og sambland af því besta og áhugaverðasta hverju sinni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×