Menning

Haukur hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Verðlaunin nema 800 þúsund krónum.
Verðlaunin nema 800 þúsund krónum. Reykjavíkurborg
Haukur Ingvarsson hlaut í dag 18. október Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2018 fyrir ljóðahandritið Vistarverur. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, staðgengill borgarstjóra, veitti verðlaunin sem nema 800 þúsund krónum að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Haukur Ingvarsson er fæddur árið 1979. Hann lauk meistaraprófi í íslenskum bókmenntum árið 2005 og hefur síðan fengist við ritstörf og dagskrárgerð í útvarpi. Hann leggur nú stund á doktorsnám í íslenskum bókmenntum og skrifar um viðtökur Williams Faulkner á Íslandi.

Fyrsta ljóðabók Hauks, Niðurfall og þættir af hinum dularfulla Manga, kom út 2005 og í kjölfarið komu fræðibókin Andlitsdrættir samtíðarinnar: Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness (2009) og skáldsagan Nóvember 1976 (2011).

Alls bárust 60 óbirt ljóðahandrit undir dulnefni. Dómnefndina skipuðu Úlfhildur Dagsdóttir formaður, Þórarinn Eldjárn og Börkur Gunnarsson.

Í niðurstöðu dómnefndar segir:

„Í ljóðabók Hauks Ingólfssonar eru margar Vistarverur. Orðið sjálft, vistarvera, gefur til kynna tilfinningu fyrir stað og íbúa auk þess að vísa til tilvistarinnar sjálfrar og stöðu verunnar í henni. Allt þetta kemur saman í ljóðunum en þau einkennast af vangaveltum um tengsl hins efnilega og hins andlega, með áherslu á samfellu þessa.

Þannig verða byggingar og skip framlenging af sjálfi ljóðmælanda, minningar og draumar taka á sig áþreifanlega mynd í hinum ýmsu vistarverum og veruleikinn sjálfur er jafnframt bundin upplifunum og tengslum við stað og stundir. Ljóðmælandi er á stundum líkt og einskonar draugur í eigin tilveru, hann veltir fyrir sér stöðu sinni í umhverfi sínu og sjálfsmynd og gluggar í stórar spurningar jafnt sem smáar.

Tóntegundin einkennist af hógværð í bland við íhygli og kímni. Heildarmyndin er falleg, margræð og fjölkunnug.“


Tengdar fréttir

Hjörtur hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar

Hjörtur Marteinsson var afhent Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2014 fyrir ljóðahandritið Alzheimer-tilbrigðin í Höfða fyrr í dag.

Eyrún Ósk hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Eyrún Ósk Jónsdóttir hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir árið 2016 fyrir ljóðahandritið Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veitti henni verðlaunin í dag sem nema 700 þúsund krónum. Fyrstu eintökin af bókinni komu um leið úr prentun í útgáfu Bjarts.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×