Innlent

Fleiri konur stíga fram vegna meðhöndlarans

Gunnþórunn Jónsdóttir skrifar
Maðurinn er sérhæfður í mjaðmavandamálum að sögn lögmanns hans.
Maðurinn er sérhæfður í mjaðmavandamálum að sögn lögmanns hans. vísir/getty

Að minnsta kosti þrjár konur til viðbótar telja sig hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni og/eða nauðgun af hálfu manns sem meðhöndlar fólk með stoðkerfisvanda.

Fréttablaðið greindi frá því í gær að karlmaður á fimmtugsaldri hefði verið kærður fyrr á árinu fyrir meint kynferðisbrot gegn nokkrum konum en maðurinn starfar ekki á vegum hins opinbera. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Sigrún Jóhannsdóttir, lögmaður og eigandi Lögvís lögmannsstofu og jafnframt réttargæslumaður kvennanna sem kærðu á þessu ári, staðfestir að fleiri konur hafi leitað til hennar eftir umfjöllun Fréttablaðsins í gær.

„Ég hef verið á ráðstefnu Jafnréttisstofu í dag svo ég hef lítinn tíma haft til að sinna öðru en get þó nefnt að núna fyrir hádegi höfðu nokkrar konur samband við mig vegna málsins. Af þeim eru þrjár sem ætla að koma á fund til mín næstu daga, en þær lýsa því að hafa orðið fyrir broti í meðferð hjá manninum. Þetta mun svo allt skýrast betur á næstu dögum,“ segir Sigrún.

Miðað við viðbrögðin telji hún ástæðu til að hvetja þá sem telja sig hafa orðið fyrir brotum til að stíga fram.

Maðurinn á að hafa meðhöndlað konurnar í gegnum leggöng þeirra. Sigrún telur málið óneitanlega vera viðameira en ætla mátti í upphafi og frá því að málið hafi komið inn á borð til hennar hafi konunum farið fjölgandi.

„Ég vona einlæglega að lögreglan fari að taka þetta mál fastari tökum og virkilega skoði hvort það sé grundvöllur fyrir frekari íhlutun. Ég trúi ekki öðru.“

Lögfræðingur mannsins, Steinbergur Finnbogason, vísaði í Fréttablaðinu í gær ásökunum á hendur manninum á bug. Þær komi skjólstæðingi hans mjög á óvart.

„Hann er búinn að starfa hér á landi með sérhæfða líkamsmeðhöndlun fyrir mjaðmavandamál í rúmlega fjórtán ár og hefur á þessum tíma tekið á móti yfir fimmtíu þúsund heimsóknum ánægðra skjólstæðinga af báðum kynjum og á öllum aldri.“

Þá sagði Steinbergur að um væri að ræða dæmigerða tilraun til aftöku á Alþingi götunnar án dóms og laga.

„Og því miður er andrúmsloftið þannig þessa dagana að þrátt fyrir mögulega sýknun fyrir dómstólunum nær böðull umræðunnar að vinna verkin sín löngu áður en dómstólarnir úrskurða um sekt eða sýknu,“ sagði lögmaðurinn meðal annars í Fréttablaðinu gær.


Tengdar fréttir

Stór hluti málanna stoppi hjá lögreglu

Hildur Fjóla Antonsdóttir, doktorsnemi í réttarfélagsfræði við háskólann í Lundi í Svíþjóð, gerði víðtæka rannsókn á árunum 2008-2009, ásamt Þorbjörgu Sigríði Gunnarsdóttur, þar sem þær fylgdu hverju einasta kynferðisbrotamáli eftir hjá lögreglunni.

Þykir alvarlegt að maðurinn sé enn að störfum

Karlmaður sem vinnur með einstaklinga sem glíma við stoðkerfisvanda hefur verið kærður nokkrum sinnum á þessu ári fyrir kynferðisbrot í starfi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfestir að þrjú mál séu til rannsóknar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×