Innlent

Í farbann vegna gruns um greiðslukortamisferli við flugmiðakaup

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Lögreglan á Suðurnesjum er með málið til rannsóknar.
Lögreglan á Suðurnesjum er með málið til rannsóknar. Vísir/Vilhelm
Erlendur karlmaður sætir nú farbanni til 24. október næstkomandi vegna gruns um misnotkun greiðslukorta við kaup á flugmiðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Þar segir að maðurinn hafi komið til landsins í fyrradag og var hann handtekinn og vistaður á lögreglustöð. 

Maðurinn kvaðst hafa hitt karlmann í teiti sem hefði tjáð sér að hann starfaði hjá fyrirtæki sem gæti útvegað afslátt á flugmiðum. Hinn handtekni bókaði svo miða í gegnum teitismanninn að eigin sögn.

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×