Sport

Fótbrotnaði og gaf félaginu sínu puttann á leið til búningsklefa

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Svekktur Thomas sýnir tilfinningar sínar.
Svekktur Thomas sýnir tilfinningar sínar. vísir/getty
Gærkvöldið var hrikalega svekkjandi fyrir hinn frábæra varnarmann Seattle Seahawks, Earl Thomas. Hann fótbrotnaði og spilar því ekki meir í vetur. Er hann kemur til baka verður hann samningslaus.

Thomas hefur átt í mikilli deilu við forráðamenn Seahawks. Hann er á lokasamningsári og vildi ekki æfa né spila fyrr en hans framtíðarmál kæmust á hreint. Seahawks reyndi líka að skipta honum til annars félags en allt kom fyrir ekki.

Thomas er í svipaðri stöðu og LeVeon Bell, hlaupari Steelers sem er ekki enn byrjaður að spila, en ólíkt Bell þá mætti Thomas til leiks eftir að hafa sleppt æfingum framan af. Hann stendur svo með liðinu, tekur áhættu og meiðist illa. Eina sem hann vildi segja á leið sinni af vellinum í síðasta skipti í vetur var þetta að neðan. Puttann beint upp á Seattle.





Thomas hefði með réttu átt að fá stóran samning fyrir tímabilið en sem betur fer fyrir hann þá binda þessi meiðsli ekki enda á hans feril

Brotið var hreint og engin sködduð liðbönd eða álíka. Hann ætti því að vera klár aftur eftir áramót. Þá verður hann samningslaus og getur fengið sinn stóra samning.

NFL

Tengdar fréttir

Enn álög á Cleveland | Patriots reif sig í gang

Cleveland Browns vann sinn fyrsta leik í langan tíma fyrir viku síðan og liðið spilaði frábærlega í gær. Það dugði þó ekki til því liðið tapaði framlengingu gegn Oakland, 45-42.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×