Bíó og sjónvarp

Hera allt í öllu í nýrri stiklu úr stórmynd Peter Jackson

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hera leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Mortal Engines.
Hera leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Mortal Engines.
Hera Hilmarsdóttir er í aðalhlutverki í nýjustu stórmynd Peter Jackson sem væntanleg er síðar á árinu. Í nótt kom út ný stikla úr myndinni þar sem Hera fer greinilega á kostum.

Myndin ber nafnið Mortal Engines og kemur í kvikmyndahús 14. desember hér á landi. Er hún nýjasta afurð Jackson sem best er þekktur fyrir Lord of the Rings myndir sínar.

Sjá einnig: Var óviss um að hún væri nógu góð fyrir Ben Kingsley

Mortal Engines segir frá fjarlægri framtíð þar sem jarðarbúar hafast við á því litla sem eftir er af jörðinni vegna mikilla hamfara. Mannfólkið hefur þar náð að aðlagast þessum hrikalegu aðstæðum.

Leikur Hera hlutverk Hester Shaw í myndinni en með önnur hlutverk fara Hugo Weaving og Stephen Lang. Leikstjóri er Christian Rivers, náinn samstarfsmaður Jackson, sem framleiðir myndina.

Hér að neðan má sjá stikluna nýju en þar er karakter Heru Hilmarsdóttur sérstaklega til umfjöllunar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×