Bíó og sjónvarp

Um fjörutíu þúsund manns séð Lof mér að falla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Elín Sif og Eyrún Björk eru frábærar í hlutverkum Stellu og Magneu og túlka stúlkurnar í gleði og sorg af mögnuðu næmi.
Elín Sif og Eyrún Björk eru frábærar í hlutverkum Stellu og Magneu og túlka stúlkurnar í gleði og sorg af mögnuðu næmi.
Um fjörutíu þúsund manns hafa séð kvikmyndina Lof mér að falla í kvikmyndahúsum landsins eftir fjórar sýningarhelgar.

Myndin er þriðja vinsælasta mynd ársins og orðinn tekjuhæsti íslenska kvikmynd ársins.

Alls sáu 6.013 gestir Lof mér að falla í vikunni, en heildarfjöldi gesta er 39.992 manns eins og kemur fram á vefsíðunni Klapptré.

159 sáu Kona fer í stríð í vikunni. Alls hafa 18.132 séð myndina eftir 19. sýningarhelgi.

Lof mér að falla er nýjasta kvikmynd Baldvins Z sem gerði meðal annars Vonarstræti á sínum tíma.

Framundan hjá leikstjóra, aðalleikurum og framleiðendum er að fylgja myndinni eftir á kvikmyndahátíðina Busan í S-Kóreu þar sem Lof mér að falla mun taka þátt í World Cinema hluta hátíðarinnar. Busan er stærsta kvikmyndahátíð Asíu og fer fram 4.-13. október.


Tengdar fréttir

„Það erfiðasta sem ég hef gert“

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir fer á kostum í kvikmyndinni Lof mér að falla en þar leikur hún sprautufíkil sem hefur misst öll tök á lífi sínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×