Viðskipti innlent

Sigurður Pálmi kaupir þrjár Bónusverslanir

Hörður Ægisson skrifar
Á meðal þeirra verslana sem Högum var gert að selja var Bónus við Hallveigarstíg.
Á meðal þeirra verslana sem Högum var gert að selja var Bónus við Hallveigarstíg. Fréttablaðið/Sigtryggur
Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sports Direct á Íslandi og annar eigenda Boxins, vefverslunar sem selur mat og aðrar nauðsynjavörur, er að ganga frá kaupum á þremur Bónusverslunum á höfuðborgarsvæðinu af smásölurisanum Högum, samkvæmt heimildum Markaðarins. Til stendur að halda þar áfram sambærilegum rekstri en ekki liggur fyrir undir hvaða merki verslanirnar verða reknar.

Þær Bónusverslanir sem um ræðir eru staðsettar á Hallveigarstíg, í Faxafeni og Skeifunni. Sala á verslunum var á meðal þeirra fjölmörgu skilyrða Samkeppniseftirlitsins sem Hagar samþykktu að undirgangast í síðasta mánuði í tengslum við kaup félagsins á Olís. Þá setti Samkeppniseftirlitið kaupunum einnig þau skilyrði að Högum yrði gert að selja fimm eldsneytisstöðvar Olís og ÓB.

Sigurður Pálmi sagðist aðspurður ekkert geta tjáð sig um viðskiptin í samtali við Markaðinn.

Samningur vegna kaupanna á Bónusverslununum hefur þegar verið undirritaður en Samkeppniseftirlitið vinnur nú að því að meta hæfi kaupenda að eignunum. Vonir standa til að því hæfismati verði lokið í síðasta lagium miðjan nóvember. Í sátt Haga og Samkeppniseftirlitsins er sem dæmi gerð sú krafa að kaupandinn búi yfir „nægjanlegri þekkingu, fjárhagsstyrk og hvata til þess að líklegt sé að hann geti bæði til skemmri og lengri tíma veitt keppinautum umtalsvert samkeppnislegt aðhald“.

Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson kaupmaður
Sigurður Pálmi stýrði verslun Sports Direct á Íslandi um sex ára skeið en breska íþróttavörukeðjan Sports Direct keypti 60 prósenta hlut Rhapsody Investments, móðurfélags verslunarinnar í Kópavogi, í byrjun þessa árs. Nam kaupverðið um 2,5 milljónum punda, jafnvirði 365 milljóna íslenskra króna, að því er fram kom í ársreikningi bresku keðjunnar fyrir síðasta rekstrarár sem lauk í apríl. Seljendur eignarhlutarins voru Sigurður Pálmi og fjölskylda.

NDS, rekstrarfélag verslunarinnar á Íslandi, hagnaðist um ríflega 135 milljónir á rekstrarárinu frá maí 2016 til apríl 2017 og tvöfaldaðist hagnaðurinn á milli rekstrarára. Þá nam velta NDS tæplega 1.050 milljónum á tímabilinu. Verslun Sports Direct á Íslandi, sem var opnuð árið 2012, var í frétt Sunday Times haustið 2017 sögð sú arðbærasta sem rekin væri undir merkjum Sports Direct en þær eru alls um 700 talsins í 19 Evrópuríkjum.

Sigurður Pálmi er sonur Ingibjargar Pálmadóttur, aðaleigenda 365 miðla, sem meðal annars á og rekur Fréttablaðið. Frá því var greint á vef Fréttablaðsins í gærmorgun að félagið 365 miðlar hefði selt allan hlut sinn í Sýn fyrir tæpa tvo milljarða króna og samtímis keypt ríflega þriggja prósenta hlut í Högum fyrir hátt í 1,8 milljarða. Fyrir viðskiptin voru 365 miðlar þriðji stærsti hluthafi Sýnar með tæplega 11 prósenta hlut.

Félög tengd þeim hjónum Ingibjörgu og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni áttu fyrir kaupin í gær um tveggja prósenta hlut í Högum, einkum í gegnum fjármögnun hjá Kviku banka, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.


Tengdar fréttir

Selja í Sýn og kaupa í Högum

Ingibjörg Pálmadóttir og Jón Ásgeir Jóhannesson fá tvo milljarða króna í sinn hlut og kaupa í Högum fyrir 1,8 milljarð króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×