Viðskipti innlent

Losna undan kvöðum og dreifa áhættu

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir, aðaleigandi 365 miðla.
Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir, aðaleigandi 365 miðla.
„Við fengum einfaldlega tilboð um að skipta bréfum okkar í Sýn fyrir bréf í Högum. Við ákváðum að taka því og losnum þar með undan kvöðum Samkeppniseftirlitsins auk þess að dreifa áhættu í fjárfestingasafni okkar,“ segir Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir, aðaleigandi 365 miðla, um viðskipti félagsins með hlutabréf í Högum og Sýn í gær.

365 miðlar seldu sem kunnugt er tæplega ellefu prósenta hlut sinn í Sýn fyrir tæpa tvo milljarða króna og keyptu ríflega þriggja prósenta hlut í Högum fyrir hátt í 1,8 milljarða króna. Var gengið frá viðskiptunum í gærmorgun, eins og fram kom í frétt á vef Fréttablaðsins í gær.

Fyrir viðskiptin voru 365 miðlar þriðji stærsti hluthafi Sýnar með tæplega 11 prósenta hlut. Félagið eignaðist hlutinn í kjölfar kaupa Sýnar, þá Fjarskipta, á öllum eignum og rekstri 365 miðla, að undanskildum eignum er varða útgáfu Fréttablaðsins og tímaritsins Glamour.

Samkeppniseftirlitið setti meðal annars þau skilyrði fyrir sölunni að innan tiltekins tíma myndu 365 miðlar þurfa að selja hlut sinn í Torgi, útgefanda Fréttablaðsins, eða Sýn

Greint var frá því í síðasta mánuði að 365 miðlar hefðu fengið Kviku banka til þess að kanna áhuga mögulegra kaupenda á Torgi. Ingibjörg segir að söluferli félagsins sé hafið og því verði haldið áfram.

„Auðvitað minnkar hins vegar pressan á því máli, enda ekki lengur þörf á að hraða för vegna skilyrða Samkeppniseftirlitsins,“ segir hún.




Tengdar fréttir

Selja í Sýn og kaupa í Högum

Ingibjörg Pálmadóttir og Jón Ásgeir Jóhannesson fá tvo milljarða króna í sinn hlut og kaupa í Högum fyrir 1,8 milljarð króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×