Erlent

Hakkarar Kim sakaðir um fjölda stafrænna bankarána

Samúel Karl Ólason skrifar
Hakkararnir eru sagðir hafa ráðist á minnst sextán banka í ellefu ríkjum frá 2014.
Hakkararnir eru sagðir hafa ráðist á minnst sextán banka í ellefu ríkjum frá 2014. Vísir/Getty
Útsendarar Norður-Kóreu eru sagðir hafa stolið hundruð milljónum dala í tölvuárásum á banka á undanförnum árum. Þetta kemur fram í skýrslu öryggisfyrirtækisins FireEye sem segir að um hóp tölvuhakkara á vegum ríkisins sé um að ræða en hann er kallaður APT38 og starfar innan stærri hóps hakkara einræðisríkisins sem kallast Lazarus.

Forsvarsmenn FireEye segja árásirnar ná aftur til 2014. Þeir hafi ráðist á minnst sextán banka í ellefu ríkjum. APT38 eru sagðir vera virkir enn í dag og af þeim stafi töluverð ógn. Þeir beiti þróuðum leiðum til að ráðast á banka og stela þaðan háum upphæðum. Þeir hafa reynt að ná minnst 1,1 milljarði dala en þeim hefur ekki alltaf tekist ætlunarverk sitt.

Sandra Joyce, aðstoðarforstjóri upplýsingamála hjá FirEye, segir meðlimi APT38 gefa sér langan tíma og þá allt að tvö ár, til þess að læra það sem þeir geta um þá aðila sem þeir ráðast á og læra á kerfi þeirra. Takist þeim að flytja fé úr bönkunum nota þeir vírusa til að valda miklum skaða áður en þeir slíta tengingum við kerfin sem um ræðir. Það gera þeir til að gera rannsakendum erfiðara að leita þá uppi og komast að því hve miklu var stolið.



FireEye kom að ákvörðun Dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna um að kæra Park Jin Hyok frá Norður-Kóreu en hann er talinn vera meðlimur APT38. Meðal þess sem hann er sakaður um er að hafa ráðist á Sony og fyrir að hafa komið að WannaCry vírusnum sem sýkti tölvur um allan heim í fyrra.

Öryggissérfræðingar annarra fyrirtækja segja AP fréttaveitunni að þeir hafi einnig séð vísbendingar um að hakkarar frá Norður-Kóreu séu að beita tölvuárásum til að safna fé.

Þeir séu einnig að kanna hvað þeir komist upp með en hingað til hafi afleiðingarnar af aðgerðum þeirra ekki verið miklar.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×