Fótbolti

Sjáðu glæsimark Rakitic og mistök Lloris

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Rakitic skorar glæsilegt mark sitt
Rakitic skorar glæsilegt mark sitt vísir/getty
Barcelona vann öruggan sigur á Tottenham á Wembley í kvöld í leik liðanna í Meistaradeild Evrópu.

Philippe Coutinho kom Barcelona yfir eftir aðeins tvær mínútur eftir mistök Hugo Lloris.

Ivan Rakitic skoraði svo stórbrotið mark og tvöfaldaði forystu gestanna. Hann var á ferðinni rétt fyrir utan vítateiginn þegar sendingin kom og setti boltann viðstöðulaust í markið.

Erik Lamela og Harry Kane reyndu að koma Tottenham betur inn í leikinn en Lionel Messi sá til þess að Barcelona fór með nokkuð öruggan 2-4 sigur.

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×