Sport

Conor kominn með keppnisbúnaðinn og segist vera tilbúinn í stríð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor mátar hanskana sem hann ætlar að nota til þess að rota Khabib.
Conor mátar hanskana sem hann ætlar að nota til þess að rota Khabib. vísir/getty
Það er fjör í nýjasta upphitunarþættinum fyrir UFC 229. Þá mætir Conor McGregor á Rolls Royce á æfingu og sækir einnig keppnisbúnaðinn fyrir stóra kvöldið.

Þjálfari Conors, John Kavanagh, segir að það séu sífelldir endurtekningar á æfingum og lofar því að boxið hans sé betra en síðast. Hann hafi lært það mikið af Mayweather-bardaganum.

Khabib Nurmagomedov fer í myndatöku fyrir kvöldið og fær einnig gefins skartgripi.

Einnig er kíkt í heimsókn til þungavigtarkappanna sem berjast um kvöldið og Tony Ferguson skellir sér í ljós. Eðlilega.

MMA

Tengdar fréttir

Geggjuð heimildarmynd um Conor og Khabib

UFC frumsýndi í gær frábæra heimildarmynd um Conor McGregor og Khabib Nurmagomedov sem mætast í stærsta bardaga í sögu UFC um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×