Sport

Conor: Ég sóttist aldrei eftir frægð en peningar eru annað mál

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor var léttur í viðtalinu við Megan.
Conor var léttur í viðtalinu við Megan.
Conor McGregor settist á dögunum niður með Megan Olivi frá UFC og ræddi við hana um lífið síðustu tvö ár en það hefur verið einn samfelldur rússíbani hjá Íranum.

Í viðtalinu segist Conor aldrei hafa sóst eftir því að vera frægur. Peningar væru aftur á móti allt annað mál. Hann sagðist tækla frægðina eins vel og hann gæti og lífið væri gott.

Írinn sýnir einnig á sér mjúku hliðarnar er hann ræðir um son sinn sem hann segir hafa breytt lífi sínu. Allt sem hann geri sér fjölskylduna.

Í viðtalinu er einnig rætt um Floyd Mayweather og að sjálfsögðu bardagann gegn Khabib Nurmagomedov sem verður í beinni á Stöð 2 Sport á laugardaginn.

MMA

Tengdar fréttir

Geggjuð heimildarmynd um Conor og Khabib

UFC frumsýndi í gær frábæra heimildarmynd um Conor McGregor og Khabib Nurmagomedov sem mætast í stærsta bardaga í sögu UFC um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×