Hannes á bekknum er Arsenal skoraði þrjú gegn Qarabag

Anton Ingi Leifsson skrifar
Skytturnar fagna einu marki sínu í kvöld.
Skytturnar fagna einu marki sínu í kvöld. vísir/getty
Hannes Þór Halldórsson var á bekknum er Qarabag tapaði 3-0 fyrir Arsenal í annarri umferð E-riðils í Evrópudeildinni.

Það voru ekki liðnar nema fjórar mínútur er varnarmaðurinn með langa nafnið, Sokratis Papastathopoulos, kom Arsenal yfir.

Þannig stóðu leikar í hálfleik og hinn átján ára gamli, Emile Smith-Rowe, tvöfaldaði forystuna á áttundu mínútu síðari hálfleiks.

Úrúgvæinn, Matteo Guendouzi, skoraði þriðja og síðasta markið tíu mínútum fyrir leikslok en Arsenal er með sex stig eftir fyrstu tvo leikina.

Qarabag er án stiga á botni riðilsins ásamt Vorskla en þessi lið mætast á heimavelli Qarabag í næstu umferð Evrópudeildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira