Ronaldo á skotskónum í áttunda sigri Juventus

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dybala fagnar marki með Cuadrado.
Dybala fagnar marki með Cuadrado. vísir/getty
Cristiano Ronaldo var á skotskónum fyrir Juventus er liðið vann 2-0 sigur á Udinese á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Rodrigo Bentancur kom Juventus yfir á 33. mínútu og fjórum mínútum síðar var það Ronaldo sem tvöfaldaði forystuna.

Það urðu lokatölurnar en Ronaldo spilaði allan leikinn í fremstu víglínu Juventus. Þeir eru með níu stiga forskot á Napoli sem á þó leik til góða; átta sigrar í átta leikjum hjá Juventus.

Udinese, fyrrum félag Emil Hallfreðssonar, er í fimmtánda sæti deildarinnar með átta stig eftir fyrstu átta leikina.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira