Innlent

Bjarni segir óvissuástandið á Vestfjörðum með öllu óviðunandi

Atli Ísleifsson skrifar
Bjarni Benediktsson segir að bregðast verði hratt við og svara því með hvaða hætti þeim sem í hlut eiga verði tryggður réttur til að láta reyna á stöðu sína gagnvart stjórnvöldum.
Bjarni Benediktsson segir að bregðast verði hratt við og svara því með hvaða hætti þeim sem í hlut eiga verði tryggður réttur til að láta reyna á stöðu sína gagnvart stjórnvöldum. Vísir/Vilhelm
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að það óvissuástand sem hafi skapast hefur á Vestfjörðum í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál sé með öllu óviðunandi.

Ráðherra segir að bregðast verði hratt við og svara því með hvaða hætti þeim sem í hlut eiga verði tryggður réttur til að láta reyna á stöðu sína gagnvart stjórnvöldum. Í því efni séu ekki eingöngu hagsmunir einstaka rekstraraðila undir heldur alls samfélagsins fyrir vestan. Þetta segir Bjarni í færslu á Facebook.

Úrskurðarnefndin felldi í vikunni úr gildi starfsleyfi Arctic Fish og Fjarðalax fyrir samtals 17.500 tonna ársframleiðslu á laxi í sjókvíum á Patreksfirði og Tálknafirði.

Fyrirtækin fóru fram á að réttaráhrifum vegna ákvörðun nefndarinnar yrði frestað þar til niðurstaða lægi fyrir hjá dómstólum en nefndin vísaði beiðninni frá.

Tryggja sanngjarnar reglur

Bjarni segir að sömuleiðis þurfi að tryggja að sanngjarnar reglur gildi um rétt til að bæta úr ágöllum í leyfisumsóknarferli, ef slíku er til að dreifa, í þessu máli og til frambúðar.

„Skýrar reglur, meðalhóf og sanngjarn málsmeðferðartími eru nokkrar af grunnreglum í því stjórnkerfi sem við viljum reka.

Það var ekki að ástæðulausu sem eftirfarandi efnisgrein var skrifuð í stjórnarsáttmálann á sínum tíma: ,,Mikilvægt er að hraða málsmeðferð þar sem það er hægt samkvæmt gildandi lögum, t.d. með því að styrkja úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Þá eru ríkisstjórnarflokkarnir sammála um að endurskoða á fyrri hluta kjörtímabilsins ákvæði um aðgang samtaka almennings að ákvörðunum á sviði umhverfismála með það að markmiði að sá réttur sé tryggður á fyrri stigum leyfisveitingarferlis og málsmeðferð geti þannig orðið skilvirkari án þess að gengið sé á þennan rétt”,“ segir Bjarni í Facebook-færslu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×