Lífið

Laufey Rún selur íbúð sína við Kleppsveg

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtileg eign á fínum stað .
Skemmtileg eign á fínum stað .
Laufey Rún Ketilsdóttir, aðstoðarkona Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra, hefur sett íbúð sína við Kleppsveg á sölu en hún greinir frá því á Facebook.

Um er að ræða tveggja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi við Kleppsveg. Ásett verð er 31,9 milljónir en fasteignamat eignarinnar er 24 milljónir.

Húsið var byggt árið 1962 en eitt svefnherbergi er í íbúðinni. Hér að neðan má sjá myndir af eigninni.



Íbúðin er í þessu fjölbýlishúsi.
Skemmtileg borðstofa.
Fínasta stofa.
Eitt svefnherbergi er í íbúðinni þaðan sem útgengt er út á svalir.
Svona er eldhúsið í íbúðinni.
Eldhúsið flísalagt í hólf og gólf.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×