Fótbolti

Hælspyrna Alfreðs tilnefnd sem mark mánaðarins

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Alfreð fagnar einu þriggja marka sinna
Alfreð fagnar einu þriggja marka sinna vísir/getty
Hælspyrna Alfreðs Finnbogasonar er tilnefnt sem eitt af mörkum mánaðarins í Þýskalandi af sjónvarpsstöðinni ARD.

Alfreð skoraði þrennu í fyrsta leik sínum á tímabilinu með Augsburg en hann er að koma til baka eftir meiðsli. Fyrsta mark Alfreðs í leiknum var af glæsilegri gerðinni, hælspyrna upp við stöngina.

Fimm mörk eru tilnefnd sem mark mánaðarins. Mark Alfreðs er það eina úr Bundesligunni, þrjú eru úr leikjum B-deildarinnar og eitt úr kvennadeildinni.

Hægt er að kjósa mark Alfreðs hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×