Körfubolti

Butler langar að fara til Clippers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Butler í leik með Úlfunum.
Butler í leik með Úlfunum. vísir/getty
Jimmy Butler kom einhverjum á óvart í gær er hann bað um að fá að fara frá Minnesota Tumberwolves.

Heimildir ESPN herma að Butler hafi sett stefnuna á að komast til LA Clippers en einhverjir héldu í fyrstu að hann ætlaði í teitið hjá LeBron James í Lakers.

Það er þó ekki víst að honum verði að ósk sinni. Komist hann ekki til Clippers er enginn skortur af áhugasömum liðum. Það er svo ekki heldur víst að Úlfarnir sleppi honum en það ætti þó allt að skýrast á næstu dögum.

Butler hefur fjórum sinnum komist í Stjörnulið NBA-deildarinnar. Hann skoraði 22,2 stig, tók 5,3 fráköst og gaf 4,9 stoðsendingar að meðaltali í leik í fyrra.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×