Golf

Skollinn á síðustu holu gæti strítt okkar konu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir kláraði fyrsta hringinn á Estrella Damm Ladies Open mótinu á einu höggi yfir pari en þetta mót er hluti af LET Evrópumótaröðinni.

Ólafía Þórunn fékk tvo skolla á par fjórum holum á fyrri níu en kom til baka og var komin á parið eftir tvo fugla á seinni níu. Ólafía fékk síðan skolla á síðustu holunni og endaði því á einu höggi yfir pari.

Ólafía Þórunn er í 69. sæti af 108 kylfingum þegar þetta er skrifað en þó nokkrar eiga eftir að klára sinn fyrsta hring.

Estrella Damm Ladies Open fer fram á vegum Golf Club de Terramar klúbbsins en völlurinn er í Sitges sem er rétt hjá Barcelona.

Ólafía Þórunn er með keppnisrétt á bæði á LET Evrópumótaröðinni og á LPGA mótaröðinni í Bandaríkjunum.

Ólafía hefur keppt á þremur mótum á tímabilinu 2018 á LET Evrópumótaröðinni. Hún keppti síðast í byrjun september á Lacoste Ladies Open de France á LET Evrópumótaröðinni. Þar endaði Ólafía Þórunn í 11. sæti. Ólafía Þórunn er í 76. sæti á stigalista mótaraðarinnar.

Hér fyrir neðan má sjá skorkortið hennar í dag. Samkvæmt skráningu á úrslitasíðu LET þá hóf Ólafía Þórunn leik á níundu holu en endaði á áttundu holu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×