Innlent

Hafa fengið ansi margar ábendingar um óeðlilega stjórnunarhætti

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Borgarfulltrúar í meiri-og minnihluta borgarstjórnar hafa fengið margvíslegar ábendingar um óeðlilega stjórnunarhætti innan Orkuveitu Reykjavíkur. Mikilvægt sé að innri endurskoðun borgarinnar fari vel yfir stjórnunarhætti og menningu innan fyrirtækisins.

Brynhildur Davíðsdóttir, formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, gerði grein fyrir málefnum fyrirtækisins á fundi borgarstjórnar í dag. Hún vildi ekki veita fréttastofu viðtal eftir fundinn en borgarstjóri og borgarfulltrúar borgarráðs voru ánægðir með svör hennar í ráðinu og sögðu að áframhald þess væri í höndum stjórnarinnar. Innri endurskoðun borgarinnar á að gera úttekt á fyrirtækinu. Borgarfulltrúar höfðu heyrt frá fólki sem hefur kvartað undan starfsháttum í fyrirtækinu.

„Við vitum það borgarfulltrúar að við erum að fá ýmis skilaboð og það var ágætis umræða um það núna og við komum til með að framsenda þau skilaboð, þá með leyfi viðkomandi aðila ef að það gefst, til Innri endurskoðunar sem kemur til með að taka þau þá upp,“ segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs. 

Eyþór ekki viss hvort takist að ljúka úttektinni á tveimur mánuðum



„Við höfum fengið ábendingar frá starfsfólki og fyrrverandi starfsfólki sem telur vera á sér brotið. Ég tel að það þurfi að taka þessar ábendingar alvarlega, hvort sem þær eru réttar eða rangar, það kemur þá bara í ljós. En þetta eru ansi margar ábendingar og ég er ekki einn um það og ég held að það sé mikið verkefni og ég er ekki viss um að það náist að ljúka þessari úttekt á tveimur mánuðum,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. 

„Ég hef, og fleiri, verið að heyra sögur. Ekki bara af þessu fyrirtæki heldur heilmargir komið að máli við mig bara héðan úr Ráðhúsinu. Það eru fleiri fyrirtæki sem eru í eigu borgarinnar þar sem þessi mál eru ekki góðu lagi,“ segir Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins. 

Lögfræðingur Áslaugar Thelmu Einarsdóttur sem var sagt upp störfum í síðustu viku sendi erindi á fund stjórnar Orkuveitunnar í gær þar sem farið var fram á stjórn OR taki afstöðu til þess með hvaða hætti tekið verði á marklausari uppsögn hennar og kallað er eftir allsherjar skoðun á vinnustaðamenningunni þar. Afstaða til erindisins verður tekin á stjórnarfundi OR á mánudag.


Tengdar fréttir

Stjórnin mætti endurskoða starf alltumlykjandi forstjóra

Þörf er á töluverðum hrókeringum innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur þegar Bjarni Bjarnason víkur tímabundið sem forstjóri. Hann hefur auk forstjórastarfsins aðkomu að stjórn fjögurra af fimm dótturfélögum OR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×