Enski boltinn

Aguero framlengir við Man. City

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sergio Aguero.
Sergio Aguero. vísir/getty
Argentínumaðurinn Sergio Aguero er búinn að skrifa undir nýjan eins árs samning við Man. City og er því samningsbundinn félaginu fram á sumar árið 2021.

Hinn þrítugi Aguero kom til City frá Atletico Madrid árið 2011. Hann kostaði þá 38 milljónir punda.

Hann hefur verið algjör lykilmaður í uppgangi félagsins síðustu ár en með hann hjá félaginu hefur City unnið deildina þrisvar sinnum.

Aguero er orðinn markahæsti leikmaður í sögu félagsins með 204 mörk og mark hans gegn QPR árið 2012, sem tryggði titilinn, mun aldrei gleymast.

„Ég er mjög ánægður með þetta því hér hefur verið farið vel með mig. Ég ætlaði alltaf að vera í tíu ár hérna og þegar samningurinn klárast þá eru komin tíu ár,“ sagði Aguero.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×