Innlent

Bíllinn og dúkkan úr Adam&Evu-innbrotinu fundin

Birgir Olgeirsson skrifar
Kynlífsdúkka sem var skilin eftir í innbrotinu í Adam og Evu í morgun.
Kynlífsdúkka sem var skilin eftir í innbrotinu í Adam og Evu í morgun. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann bílinn, sem notaður var til að brjótast inn í kynlífshjálpartækjaverslunina Adam og Evu við Kleppsveg í Reykjavík snemma í morgun, í bílastæði við Glæsibæ upp úr klukkan þrjú í dag.

Innbrotsþjófarnir tveir bökkuðu bílnum ítrekað á inngang verslunarinnar, fóru inn og stálu þar kynlífsdúkku úr versluninni auk annars varning og óku á brott. Átti þetta sér stað um klukkan hálf sex í morgun.

Jóhann Karl Þórisson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að kynlífsdúkkan hefði verið í bílnum þegar hann fannst við Glæsibæ fyrr í dag.

Hann segir innbrotsþjófana ófundna og ekki sé vitað hvort um sé að ræða tvær konur eða konu og mann. Hann segir lögregluna í raun engu vísari um hverjir voru að verki.

 

Kynferði þjófanna liggur ekki fyrir

Í frétt Vísis í morgun, þar sem sagði af þessu harkalega innbroti, var staðhæft að um tvær stúlkur væri að ræða. Það byggði á því að ekki verður betur séð; þá er einstaklingur sem augljóslega virðist vera stúlka, kom í ofboði út úr búðinni og dröslaði með sér silikon-dúkkunni, henti henni í götuna meðan hún reyndi að opna stórskemmdan bílinn til að koma dúkkunni þar inn.

Þegar betur er rýnt í myndbandið, sem hefur vakið gríðarlega athygli, gæti hinn aðilinn hæglega verið drengur en sá eða sú hylur andlit sitt íklædd hettupeysu. Eru vangaveltur uppi um þetta víða á internetinu, meðal annars í athugasemdakerfi undir frumfrétt af málinu. En, sem fyrr sagði er ekki vitað hverjir voru að verki.

Bíllinn, sem er af gerðinni Hyundai i10, var á stolnum númerum að sögn Jóhanns.

Hann segir lögreglu eiga eftir að kanna hvort eftirlitsmyndavélar séu á svæðinu þar sem bíllinn var skilinn eftir við Glæsibæ og hvort þjófarnir séu á því myndefni.

Samkvæmt upplýsingum frá eiganda verslunarinnar er það sem ræningjarnir höfðu á brott með sér sílikon-kynlífsdúkka sem kostar 350 þúsund krónur, nokkrir titrarar og sleipiefni.

Jóhann Karl gat aðeins staðfest að svo stöddu að kynlífsdúkkan væri fundin, en óvíst sé um annað þýfi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×