Innlent

Íbúar á Hlíð í efstu sætum alþjóðlegrar hjólakeppni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Á öldrunarheimilum Akureyrar er mikið hjólað þessa dagana en öldrunarheimilin Hlíð og Lögmannshlíð taka nú þátt í Heimsleikum eldri borgara í hjólreiðum.

Hjólreiðakeppnin hófst 3. september og stendur út mánuðinn. Verkefni keppenda er í sjálfu sér einfalt.

„Þennan mánuðinn er keppni í að hjóla, hver geti verið duglegur að hjóla,“ segir Dýrleif Eggertsdóttir, íbúi á Hlíð.

Og á Hlíð eru íbúarnir sannarlega duglegir enda hafa þeir hjólað yfir þúsund kílómetra og er Hlíð í fimmta sæti af 125 öldrunarheimilum sem taka þátt í fimm löndum. Íbúarnir eru mjög ánægðir með þátttökuna.

„Það er tilbreyting í þessu, að hreyfa sig eins og maður gerði í gamla daga,“ segir Bogi Þórhallsson.

Varstu mikið á hjóli þegar þú varst yngri

„Jájájá, við búskapinn fram í sveit,“ segir Bogi.

En hvað er það skemmtilegasta við þetta allt saman?

„Það er hreyfingin og að vera inn um fólkið hérna, það er ákaflega gott,“ segir Elín Jónsdóttir.

Sjúkraþjálfari sem hefur umsjón með verkefninu segir að hjólreiðarnir hafi mjög jákvæð áhrif á keppendurna.

„Þetta bæði eykur úthald og þol og hefur liðkandi áhrif. Fólk hjólar lengur, þetta er áhugahvetjandi. Það reynir meira á sig, sérstaklega í svona keppni. Þetta vekur upp keppnisskapið og er bara mjög skemmtilegt“

Myndum er varpað á skjá fyrir framan hjólreiðagarpana og þannig geta þeir ímyndað sér að þeir séu að hjóla úti. Keppendur sem fréttamaður ræddi við voru á því að þetta væri mjög gagnlegt en sumir beina þó allri athyglinni að hjólreiðunum sjálfum.

„Veistu það að ég yfirleitt lít ekki á þetta. Ég segi þér alveg eins og ég er. Ég er með hugann við það sem ég er að gera,“ segir Jakobína Kristín Stefánsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×