Fótbolti

Guðbjörg fór meidd af velli

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Guðbjörg Gunnarsdóttir fékk á sig tvö mörk í dag
Guðbjörg Gunnarsdóttir fékk á sig tvö mörk í dag VÍSIR/ERNIR
Landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir fór meidd af velli í fyrri hálfleik í leik Djurgården og Pitea í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsli Guðbjargar eru en nógu slæm þó til þess að hún neyddist til þess að fara af velli og varamarkvörður Djurgården kom inn í hennar stað.

Eina mark leiksins kom áður en Guðbjörg yfirgaf markið, Emelie Lovgren náði að skora framhjá íslenska landsliðsmarkverðinum á 20. mínútu.





Í sænsku karladeildinni sat Haukur Heiðar Hauksson allan leikinn á varamannabekk AIK þegar Hammarby mætti í heimsókn.

Henok Goitom skoraði eina mark leiksins fyrir AIK á 76. mínútu eftir að hafa misnotað vítaspyrnu fyrr í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×