Fótbolti

Andri Rúnar skaut Helsingborg á toppinn með marki í uppbótartíma

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Andri Rúnar hættir ekki að skora
Andri Rúnar hættir ekki að skora Heimasíða Helsingborg
Allt stefndi í markalaust jafntefli er Helsingborg og Frej mættust í sænsku fyrstu deildinni í dag en markahrókurinn Andri Rúnar Bjarnason var á öðru máli.



Andri Rúnar tryggði sínum mönnum sigurinn með marki á fyrstu mínútu uppbótartímans en með markinu skaut hann Helsingborg á topp deildarinnar.



Andri Rúnar fór á kostum með Grindavík síðasta sumar í Pepsi-deildinni og jafnaði markametið fræga. Hann hefur haldið uppteknum hætti í Svíþjóð og er markahæsti maður fyrstu deildarinnar. Mark hans í dag var það þrettánda í deildinni.



Helsingborg hefur tveggja stiga forystu á Falkenberg á toppi deildarinnar og en liðin eru í harðri baráttu um sigurinn í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×