Fótbolti

Arnór tryggði Lilleström nauðsynlegan sigur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arnór er hann skrifaði undir hjá Lilleström.
Arnór er hann skrifaði undir hjá Lilleström. mynd/heimasíða lilleström
Arnór Smárason tryggði Lilleström afar mikilvægan 1-0 sigur í norsku úrvalsdeildinni í dag er liðið hafði betur gegn Tromsö.

Liðin mættust á heimavelli Lilleström í kvöld en leikurinn var mikilvægur fyrir Lilleström því liðið er í bullandi fallbaráttu í Noregi.

Sigurmarkið kom átta mínútum fyrir leikslok en það skoraði Arnór. Markið kom úr vítaspyrnu en sigurinn afar mikilvægur.

Lilleström er þrátt fyrir sigurinn enn í fallsæti, með 22 stig í fimmtánda sæti deildarinnar, en þó er einungis eitt stig upp úr fallsætinu.

Sjö leikir eru eftir af deildinni og ljóst að baráttan verður hörð en Tromsö er í tíunda sæti deildarinnar eftir leik dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×