Fótbolti

Styttist í endurkomu Alfreðs

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Alfreð Finnbogason skoraði fyrsta mark Íslands á HM.
Alfreð Finnbogason skoraði fyrsta mark Íslands á HM. Vísir/Getty
Það styttist í endurkomu Alfreðs Finnbogasonar inn á fótboltavöllinn en hann er farinn að æfa með liði Augsburg á ný.

Manuel Baum, knattspyrnustjóri Augsburg, ræddi við fjölmiðla í gær fyrir heimsókn Augsburg til Bayern Munich í þýsku Bundesligunni í kvöld.

Hann sagði að Alfreð væri byrjaður að æfa með Augsburg en myndi ekki ná leiknum í kvöld.

Íslenski landsliðsmaðurinn hefur ekkert spilað síðan á HM í Rússlandi í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×