Handbolti

Báðir Evrópuleikir FH í Portúgal

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
FH átti mikið Evrópuævintýri á síðasta tímabili.
FH átti mikið Evrópuævintýri á síðasta tímabili. vísir/daníel
FH mun leika báða leiki sína við Benfica í EHF bikarnum í Portúgal. Leikirnir fara fram helgina 13.- 14. október.

Mbl.is greinir frá þessu í dag. Þar segir að FH hafi ákveðið að selja heimaleikjarétt sinn til þess að draga úr kostnaði við þátttöku í leikjunum. Upphaflega átti seinni leikur liðanna að fara fram í Kaplakrika.

Leikirnir eru liður í annarri umferð EHF bikarsins. FH vann króatíska liðið Dubrava í fyrstu umferðinni.

Selfoss og ÍBV taka bæði þátt í annarri umferð bikarsins líkt og FH. Leikir þeirra fara þó fram heima og að heiman. Selfoss mætir Rivnica frá Slóveníu og ÍBV leikur við Aix frá Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×