Lífið

Ferlið frá A-Ö í fósturkerfinu: „Hollt fyrir alla að bera ábyrgð“

Stefán Árni Pálsson skrifar
María Dröfn sækist eftir því að verða fósturforeldri.
María Dröfn sækist eftir því að verða fósturforeldri.
Sindri Sindrason hélt áfram að fjalla um fósturkerfið á Íslandi í annarri þáttaröð af Fósturbörnum sem hóf göngu sína á sunnudagskvöldið. Í fyrsta þættinum fylgdist Sindri með ferlinu hjá Maríu Dröfn, einstæðri 39 ára konu, sem langar að eignast sína eigin fjölskyldu.

María hitti Sindra fyrst í janúar á þessu ári. Í þættinum er farið vel yfir allt ferlið sem María þarf að fara í gegnum til að vera metin hæf sem fósturforeldri en hana langar að fá barn á aldrinum 0-7 ára í varanlegt fóstur. Hún hefur áður reynt að eignast barn.

„Ég fór fyrst til Art Medica og svo til VF Reykjavík og fór í fjögur skipti og það heppnaðist aldrei,“ segir María Dröfn í fyrsta þættinum.

„Frænka mín er fósturbarn en systir mín og mágur minn tóku hana að sér. Ég fór bara að pæla hvort ég gæti farið sömu leið og þau,“ segir María sem þekkir kerfið mjög vel. Hana langar mjög að þetta gangi allt saman upp.

„Að ég fái á endanum barn til að hugsa um. Ég hræðist það pínu að fara í gegnum lífið án þess að eignast barn þar sem fjölskyldan mín er svo stór og þar eru mörg börn og mörg barnabörn. Það heillar mjög. Manni vantar það í lífið að þurfa bera ábyrgð og ég held að það sé bara hollt fyrir alla að bera ábyrgð á einhverjum öðrum en sjálfum sér.“

Hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti af Fósturbörnum sem eru á Stöð 2 á sunnudagskvöldum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×