Lífið

Ein vinsælasta strákasveit heims í Fortnite dönsum hjá Fallon

Stefán Árni Pálsson skrifar
BTS er suður-kóreskt band sem er heldur betur að slá í gegn.
BTS er suður-kóreskt band sem er heldur betur að slá í gegn.
Tölvuleikurinn Fortnite er einn sá allra vinsælasti í heiminum en hann snýst um að skjóta þá sem eru í kring í von um að standa uppi sem eini aðilinn eftirlifandi. Leikurinn vinsæli er aðgengilegur í öllum Playstation tölvum, PC-tölvum og snjallsímum.

Þeir sem spila Fortnite þekkja vel þá dansa sem karakterarnir sýna oft í leiknum og eru dansarnir orðnir gríðarlega vinsælir um heim allan. Til að mynda fagna oft bestu knattspyrnumenn heims mörkum með því að taka eitt stykki Fortnite dans.

Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Fallon setti í vikunni á svið Fortnite danssýningu með strákunum strákasveitinni BTS. Sveitin er suður-kóresk  sem er að verða ein vinsælasta strákasveit heims.

Kóreskt popp er að mörgu leyti einstakt, er yfirleitt kallað K-pop og eru aðdáendur slíkra poppsveita kröfuharðari og dyggari en í flestum öðrum tónlistargeirum. BTS, sem skipuð er af sjö drengjum, er líklega vinsælasta sveitin sem fellur undir menningarfyrirbrigðið, a.m.k. á vesturlöndum. Hér að neðan má sjá hvernig áskorunin gekk fyrir sig.

Hér fyrir neðan má sjá spjall við drengina.

Hér neðan má sjá eitt vinsælasta myndbandið og lagið hjá þeim drengjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×