Innlent

Nýr Herjólfur hefur siglingar 30. mars

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Stefnt er að því að hefja reglulegar siglingar á nýrri Vestmannaeyjaferju, nýjum Herjólfi frá Landeyjahöfn þann 30. mars á næsta ári. Þangað til mun núverandi Herjólfur sigla milli lands og Eyja.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Vegagerðinni en nýja ferjan, er í smíðum hjá skipasmíðastöðinni Crist S.A. í Gdansk í Póllandi. Greint hefur verið frá því að afhending ferjunnar hafi tafist en í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að ekki liggi fyrir hvenær nýja ferjan verði afhent.

„Hvorki rekstaraðilum né yfirvöldum hugnast vel að hefja rekstur á nýju og breyttu skipi um háveturinn og því er þessi tími valinn í lok mars. Tíminn frá afhendingu og þar til rekstur hefst verður notaður til prófana á sjólagi skipsins og til þjálfunar á áhöfn, en búnaður skipsins er talsvert breyttur frá gamla Herjólfi,“ segir í tilkynningunni.

Nýi Herjólfur hefur búnað sem gerir kleift að knýja skipið alfarið með raforku og er það í fyrsta sinn sem slík tækni er tekin til notkunar hér á land en í tilkynningunni segir að með því móti sé verið leitast við að leggja grunn að umhverfisvænum rekstri á nýju ferjunni og samgöngum við Vestmannaeyjar.

Núverandi Herjólfur mun sinna flutningum með sama hætti og verið hefur þar til ný ferja verður tekin í notkun og mun Eimskip reka ferjuna með óbreyttu sniði.

Vonir standa til þess að með nýja skipinu lengist ferðamannatímabilið í kjölfar þess að siglingar í Landeyjahöfn verða stöðugri. Það hefur sýnt sig að ferðamenn ferðast nær eingöngu í gegnum Landeyjahöfn á leið sinni til Vestmannaeyja. Það er því ljóst að með nýju skipi hefst nýr og áhugaverður kafli í samgöngusögu Vestamannaeyja,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Vill ekki rugga bátnum í Herjólfi ohf.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum óttast að nýtt stjórnarkjör hjá Herjólfi ohf. kunni að valda félaginu „óafturkræfum skaða.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×