Innlent

Frítt í Hvalfjarðargöngin frá og með eftirmiðdegi á morgun

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ekki verður lengur þörf á að stoppa við göngin til þess að greiða.
Ekki verður lengur þörf á að stoppa við göngin til þess að greiða. Fréttablaðið/Pjetur
Innheimtu í Hvalfjarðargöngin verður hætt skömmu eftir hádegi á morgun og göngin verða afhent íslenska ríkinu á sunnudaginn. Rúv greindi fyrst frá.

Í samtali við Vísi segir Gísla Gíslason, stjórnarformaður Spalar, að nú liggi fyrir samkomulag um endanlegt uppgjör vegna afhendingu ganganna. Í gær barst staðfesting þess efnis að Ríkisskattstjóri hafi staðfest skilning Spalar á meðferð á skattalegri afskrift ganganna þannig að tryggt er að engir bakreikningar berist Speli á næsta ári.

Því séu öll skilyrði fyrir hendi til þess að afhenda göngin og hætta innheimtu veggjalda.

Margir kannast við þessa stöðu.Vísir/Jói
„Það verður laust upp úr klukkan eitt. Þetta er ekki alveg einfalt það er smá tæknivinnu að loka kerfinu. Þetta er ekki einn takki,“ segir Gísli aðspurður um hvenær dags á morgun megi búast við því að gjaldheimtu verði hætt.

Hlutverki Spalar er þó ekki alveg enn lokið því að eftir á að gera upp við þá viðskiptavini sem eiga inneign hjá félaginu en að sögn Gísla eru um 50 lyklar í umferð og tuttugu þúsund áskriftasamningar. Tíma taki að ljúka þeirri vinnu og bendir hann viðskiptavinum á að fara inn á heimasíðu Spalar þar sem nálgast má upplýsingar um það hvernig skila megi lyklum og sækja um endurgreiðslu.

Hvalfjarðargöngin voru opnuð árið 1998 og því tuttugu ár frá því að þau voru opnuð. Gísli segist vera ánægður með að geta skilað göngunum af sér á þessum tímapunkti.

„Satt og segja er þetta bara léttir. Þetta er gott. það er búið að vera langur gangur í þessu. Menn sögðu að tuttugu ár væri langur tími en nú eru þau liðin. Ótrúlegt en satt. Okkar er ekki lengur þörf.“


Tengdar fréttir

Hefur starfað í gjaldskýlinu frá fyrsta degi

Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær ríkið tekur við rekstri Hvalfjarðarganga en fundað var um málið í morgun þar sem ræddar voru útfærslur á því hvernig göngin verða afhent.

Hætta að rukka í göngin 28. september

Spölur stefnir að því að afhenda Vegagerðinni Hvalfjarðargöng til eignar og rekstrar sunnudaginn 30. september 2018. Innheimtu veggjalds yrði þá hætt föstudaginn 28. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×