Innlent

Gjaldtöku í göngin hætt í dag

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Gjaldskýlið fær hvíld frá störfum, allavega tímabundið.
Gjaldskýlið fær hvíld frá störfum, allavega tímabundið. Fréttablaðið/Ernir
Það verður sannarlega söguleg stund þegar gjaldtöku í Hvalfjarðargöngin verður hætt klukkan 13 í dag. Göngin verða svo formlega afhent ríkinu á sunnudag klukkan 15.

Eignarhaldsfélagið Spölur hf. hefur ásamt samgönguráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu lokið við gerð samnings um afhendingu Hvalfjarðarganganna. Tuttugu árum eftir að jarðgöngin voru opnuð fyrir umferð.

Ljóst er að daglegir notendur ganganna munu fagna þessum tímamótum enda lagt sitt af mörkum til að greiða fyrir framkvæmdina á undangengnum áratugum.




Tengdar fréttir

Hætta að rukka í göngin 28. september

Spölur stefnir að því að afhenda Vegagerðinni Hvalfjarðargöng til eignar og rekstrar sunnudaginn 30. september 2018. Innheimtu veggjalds yrði þá hætt föstudaginn 28. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×