Golf

Finau með stórbrotið högg er Bandaríkin tóku tveggja vinninga forystu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Finau fagnar á hringnum í morgun
Finau fagnar á hringnum í morgun vísir/getty
Bandaríkin eru með 3-1 forystu eftir fyrstu keppnislotu Ryder-bikarsins í golfi sem hófst í morgun á Le Golf National-vellinum.

Keppt var í fjórbolta, þar sem keppt er í tveggja manna liðum og sá kylfingur sem á lægsta skor á hverri holu vinnur holuna.

Dustin Johnson og Rickie Fowler voru fyrstir til þess að næla í vinning, þeir höfðu betur gegn Rory McIlroy og Thorbjorn Olesen 4&2.

Justin Rose og John Rahm höfðu leitt viðureign sína við Brooks Koepka og Tony Finau lengst af en ótrúlegt teighögg Finau á sextándu holu þar sem boltinn var við það að fara í vatnið en skoppaði rétt við pinnann snéri viðureigninni við og náðu þeir að taka sigurinn á 18. holu.

Paul Casey og Tyrell Hatton voru komnir þremur holum undir gegn Justin Thomas og Jordan Spieth en náðu að jafna þegar fimm holur voru eftir. Spieth og Thomas voru hins vegar of sterkir og tóku unnu leikinn á erfiðri 18. holu.

Eina evrópska liðið sem náði í sigur var Francesco Molinari og Tommy Fleetwood. Fleetwood fór á kostum á síðustu holunum og tryggði sigur gegn Patrick Reed og Tiger Woods 3&1.

Enn gengur því ekkert hjá Tiger í Ryder-bikarnum en hann náði ekki að fylgja eftir frábærri frammistöðu á lokamóti PGA mótaraðarinnar um síðustu helgi.

Keppni í fjórmenningi er hafin og er bein útsending frá mótinu á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×