Körfubolti

Leikmaður LSU myrtur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sims er hér í leik með LSU á síðasta tímabili.
Sims er hér í leik með LSU á síðasta tímabili. vísir/getty
Það er mikil sorg í LSU-háskólanum eftir að körfuboltaleikmaður skólans, Wayde Sims, var myrtur rétt fyrir utan háskólasvæðið.

Hinn tvítugi Sims var skotinn fyrir utan Subway aðfararnótt föstudags. Hann lést af sárum sínum á sjúkrahúsinu.

„Það eru allir niðurbrotnir hérna,“ saðgi Will Wade, þjálfari körfuboltaliðsins. „Sendið bænir ykkar til Wayde og fjölskyldu hans.“

Sims var með 5,6 stig og 2,9 fráköst að meðaltali í leik á síðustu leiktíð. Faðir hans lék einnig körfubolta með skólanum á sínum tíma.

Félagi hans, Aaron Epps, var á meðal þeirra sem minntust hans í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×