Innlent

Vill ramma inn samgöngumál á næstu tveimur mánuðum

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Vísir/Hanna
Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir að á næstu tveimur mánuðum muni samtalið um uppbyggingu á stofnbrautum og almenningssamgöngum á Höfuðborgarsvæðinu verði endanlega rammað inn. Það muni skýra stefnu í þessum málum umtalsvert en hart hefur verið tekist á um þessi mál á sviði stjórnmálanna. Einnig segist Sigurður Ingi vongóður um að geta bundið enda á samtalið um úrbætur við Sundabraut. Sigurður Ingi var gestur Heimis Más Péturssonar í Víglínu Stöðvar 2 í dag.

Sigurður Ingi birti nýverið samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar sem er í raun tvískipt. Hún nær til fimm ára tímabils, 2019-2023, annars vegar og fimmtán ára tímabils hins vegar, eða til 2033. Þar eru lagðar línur um það hvernig 200 milljörðum króna verður skipt til nýframkvæmda í vegagerð á þessu tímabili.

Í Víglínunni sagði Sigurður Ingi það skipta miklu máli að á meginleiðunum þremur út úr Reykjavík, það er Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut, verði akstursleiðir aðskildar á næstu 15 árum. Þó segir Sigurður Ingi brýnt að huga að ákveðnum köflum þessara vega mun fyrr.

Sem dæmi um slíka vegarkafla nefndi hann Kjalarnes, veginn milli Hveragerðis og Selfoss og þann kafla Reykjanesbrautarinnar sem liggur í gegn um Hafnarfjörð. Á þessum vegarköflum hafa þó nokkur alvarleg umferðarslys átt sér stað á síðustu árum og ljóst að tvöföldun vega eða aðskilnaður akstursstefna myndi verða til þess fallinn að minnka líkur á slysum allverulega.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×