Körfubolti

Körfuboltakvöld: Síðasta tímabil gert upp í dramatísku myndbandi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Domino’s Körfuboltakvöld fór af stað í gærkvöldi með pompi og prakt en þar var hitað upp fyrir komandi tímabil í Dominos-deildinni.

Tómas Þór Þórðarson stýrði körfuboltaskútunni í gærkvöldi í fjarveru Kjartans Atla Kjartanssonar en með Tómasi í settinu voru þeir Teitur Örlygsson, Kristinn Friðriksson og Jón Eðvaldsson.

Í upphafi þáttarins var aðeins farið yfir það sem gerðist á síðustu leiktíð er KR varð meistari fimmta árið í röð eftir sigur á Tindastól í úrslitaeinvíginu.

Stefán Snær Geirmundsson, aðalklippari Körfuboltakvölds, gerði skemmtilegt myndband frá síðasta tímabili og þetta skemmtilega myndband má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×