Innlent

Virðist byggja á mistökum opinberra stofnanna segir ráðherra

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir ýmislegt benda til þess að úrskurðir sem fella úr gildi rekstarleyfi tveggja laxeldisfyrirtækja á Vestfjörðum byggi á mistökum. Verið sé að bera saman epli og appelsínur og ekki hafi verið tekið tillit til hagsmuna samfélagsins fyrir vestan. Úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála felldi fyrir helgi úr gildi tvö rekstrarleyfi sem Matvælastofnun hafði veitt til laxeldis í Patreksfirði og Tálknafirði.

Úrskurðirnir hafa vakið hörð viðbrögð en í sameiginlegri yfirlýsingu Vestfjarðastofu og fimm sveitarfélaga á Vestfjörðum segir meðal annars aðúrskurðurinn séáfellisdómur yfir Alþingi, ríkisstjórn og eftirlitsstofnunum. Um sé að ræða „skýrt dæmi um sálarlausa stjórnsýslu“þar sem framtíð heilu byggðalaganna sé sett í uppnám með einu pennastriki.

„Ég er nú búinn að lesa úrskurðinn og mér finnst þar menn vera að fara fram á að bera saman epli og appelsínur. Landeldi og sjókvíaeldi í opnum sjókvíum er bara sitt hvor atvinnugreininn þótt það komi lifandi fiskur upp úr þeim báðum,“ segir Sigurður Ingi. Þá segir ráðherrann að svo virðist sem ekki hafi verið tekið tillit til allra þátta er máli skipta.

„Þegar menn taka svona ákvörðun, sem virðist ef maður les úrskurðinn byggjast á mistökum opinberra stofnanna, þá er afleiðingin bæði efnahagsleg og samfélagsleg á samfélagið fyrir vestan þar sem atvinnugreinin er,“ segir Sigurður Ingi.

Í fyrrnefndri yfirlýsingu er jafnframt gefið í skyn að úrskurðarnefndin bognað undan þrýstingi fámennra hópa auðmanna sem gengið hafi fram í ósvífinni hagsmunabaráttu, eins og það er orðaðí yfirlýsingunni.

„Við höfum auðvitað séð kannski óeðlilega hörð átök á Íslandi þar sem að mér finnst að vísindin hafi verið látin undan síga og þessi þrjú megin markmið sjálfbærninnar, það er að segja ekki bara umhverfið heldur líka samfélagið og hagfræðin, hafi einhvern veginn ekki verið þátttakendur í þeirri umræðu.“

Málið var tekið fyrir á fundi ríkisstjórnarinnar í gær og að sögn Sigurðar Inga er úrskurður nefndarinnar til skoðunar hjá viðkomandi ráðuneytum.

„Hvernig sé eðlilegast að bregðast við, ég trúi því að við finnum einhverjar skynsamlegar leiðir í því.“


Tengdar fréttir

Vestfirðingar gagnrýna ósvífna hagsmunabaráttu auðmanna

Afturköllun starfsleyfa Arctic Fish og Arnarlax kann að hafa neikvæð áhrif á atvinnuöryggi íbúa á Vestfjörðum. Sveitarstjórnarmenn á svæðinu eru öskureiðir vegna úrskurða um afturköllun. Formaður atvinnuveganefndar vill skoða að fr




Fleiri fréttir

Sjá meira


×